Vatnsmelónu og tómat gazpacho

Hráefni

Vatnsmelónu og tómat gazpachio

800 gr þroskaðir tómatar (um 8), grófsaxaðir 

1 hvítlauksrif

1 sellerístilkur

1/3 – 1/2 lítill laukur, grófsaxaður 

400g vatnsmelóna, söxuð í grófa bita 

1 msk rauðvínsedik 

50ml ólífuolía, 

15g basilíka

salt og svartur pipar 

Aðferð

Öllu blandað saman í Vitamix blandara, smakkað til með salti og pipar 

Hellt í falleg glös eða skálar og toppað með avókadó bitum, sítrónusafa, ólífuolíu, basil og smá svörtum pipar 

Dásamleg létt og sumarleg súpa

Þessi uppskrift er sumarleg og snilld í öll boð í sumar! Nú er tími vatnsmelónunnar og ferskustu tómatana að koma. Þessi gazpacho er dásamleg, fersk, falleg og mjög bragðgóð

Næringarupplýsingar

Secret Link