Piparmyntu og brownie stangir/ bitar 

Hráefni

Uppskrift:

Súkkulaði brownie botn:

16 -20 döðlur, steinlausar

1 ⅓ bolli valhnetur

⅔ bolli kókosmjöl

1 msk af kakódufti

smá sjávarsalt

miðjan : 

1½ bolli kasjúhnetur (látið þær liggja i heitu vatni í um 30 mín. og hellið vatninu svo af)

½ bolli kókosmjólk

¼ bolli akasíhunang

nokkrir piparmyntudropar ég notaði um 4(smakkið ykkur bara til)

¼ tsk sjávarsalt

Toppur:

150 gr gæða dökkt súkkulaði

1 msk kókosolía

2 Muldir piparmyntu jólastafir 

Aðferð

Búið til súkkulaði brownie botn:: Setjið döðlur, valhnetur, kókos, kakóduft og salt í matvinnsluvél. Púlsaðu þar til blandan festist saman er vel klesst, ef þér finnst blndan ekki klístrast nogu vel samangætir þú þurft 1-2 matskeiðar af vatni og púlsa aftur. Taktu til brauðform/formkökuform.  Annaðhvort sílíkon form eða venjulegt og notaðu þá bökunnarpappír til að  setja áður en þú setur deigið til að auðvelda að losa stykkið frá eftir frystingu. Þrýstu blöndunni í formið og þjappaðu vel niður.   

Þetta lag númer 2 er geggjað að nota vitamixerinn þa verður þetta alveg silkimjúkt ????

Búðu til piparmyntulagið: Helltu vatninu af kasjúhnetunum og settu kasjúhneturnar, kókosmjólkina, akasíuhunangið, piparmyntudropana og salt í Vitamixer eða annan álíka kraftmikinn blandra. Blandið þar til þetta er orðið silkimjúkt. Hellið nú piparmyntu blöndunni á súkkulaði brownie botninn og dreifið jafnt yfir. 

Bætið nú toppnum ofaná: Blandið súkkulaðinu og kókosolíu saman og bræðið og hrærið vel saman. Myljið piparmyntu jólastafina.  Hellið brædda súkkulaðinu yfir lag númer 2 og stráið muldu piparmyntu jólastöfunum yfir.  setjið í frysti og frystið í minnst 4 klukkustundir eða yfir nótt. 

Mér finnst gott að skera frysta klumpinn í fallegar sneiðar og geyma þær þannig í frysti og bera svo fram sneið/ sneiðar og frysta rest.  Þetta nammi þarf að borðast meðan það er frosið eða kalt.  Geymist ekki lengi við stofuhita.  Hefur reyndar alltaf klárast hjá mér svo ég hef enn ekki smakkað þetta þannig.  En dásamlegar og hátíðlegar nammi stangir eða bita ef þú vilt minni einingar sem ég mæli með að prófa

Næringarupplýsingar

Secret Link