Frábær, krydduð og einstaklega bragðgóð gulrótarsúpa sem rífur vel í. Stútfull súpa af Beta karotíni sem er einstaklega gott fyrir húðina og augun okkar. Engiferið er bólgueyðandi og gott fyrir meltinguna okkar.
Það er upplagt að frysta þessa súpu og eiga í litlum skömmtum í frysti.
Krydduð gulrótarsúpa
Hráefni
2 msk góð ólífuolía
500 gr gulrætur, flysjaðar og skornar í bita
1 hvítlauksrif, pressaður
½ laukur, afhýddur, saxaður gróft
Smá bútur (5 g) fersk engiferrót, hreinsuð, söxuð gróft
1-2 msk Tælensk karry blanda frá Kryddhúsinu eða Red curry paste
2 bollar (um 500 ml ) grænmetissoð ( vatn og grænmetiskraftur)
1 ferna/dós (330 ml) kókosmjólk
½ tsk salt, valfrjálst
¼ tsk malaður svartur pipar
Aðferð
1. Setjið olíu, hvítlauk, lauk og engifer í pott og hitið á miðlungs hita í nokkrar mínútur, fáið laukinn til að mýkjast aðeins.
2.Næst setjið allt nema kókosmjólkina í pottinn.
og fáið suðuna til að koma upp.
3.Lækkið undir og lofið súpunni að malla í um 20 mínútur eða þar til gulræturnar eru orðnar mjúkar.
4.Hellið öllu saman ásamt kókosmjólkinni í Vitamix-blandarann.
5.Kveiktu á blandaranum á lægsta hraða, aukið síðan hratt upp í hæsta hraða. Blandið í 4-6 mínútur eða þar til gufa fer út úr lokinu.
6.Einnig er hægt að nota sjálfvirku súpustillinguna sem er á nýjustu blöndurunum.
7.Hellið í skálar og toppið með einhverju skemmtilegu, eins og til dæmis ferskum kryddjurtum og smá gæða ólífuolíu.
Magn: 3 skammtar – 720 ml
Tími: 5 mínútur
Erfiðleikastig: Auðvelt
Stærð könnu: 2 lítrar