Krydduð flauelsmjúk graskerssúpa

Hráefni

3 – 4 msk ólífuolía

4 bollar grasker afhýtt og skorið í meðalstóra bita (850 gr)

2 bollar gulrætur, skolaðar og skornar í meðalstóra bita (420g)

1 stór laukur, skorin í bita

1 tsk fennel fræ

1 tsk paprika

1 tsk cumin

1 tsk kanill  

1/2 tsk chili flögur 

4 bollar grænmetiskraftur eða kjúklingakraftur (1 lítri) 

salt og pipar, til að krydda

Aðferð

Forhitið ofninn í 180° gráður

Afhýðið og fræhreinsið graskerið og skerið svo í  bita. Saxið gulrætur og lauk i svipaða bita.

Setjið skorna grænmetið á bökunnarklædda  bökunarplötu.
Dreypið ólífuolíu yfir og stráið öllu kryddinu yfir grænmetið með klípu af salti og pipar. Bakið í ofni í 40-45 mínútur eða þar til allt er orðið meyrt og bakað.

Takið grænmetið úr ofninum og látið kólna aðeins. 

Bætið einum lítra af vatni og grænmetiskrafti/kjúklingakrafti í góðan blandara og hellið bakaða grænmetinu út í og ​​kveikið á og blandið í 3-4 mínútur eða þar til súpan er orðin silkimjúk og heit.

Hellið í skálar og toppið með ferskum kryddjurtum og nokkrum ristuðum valhnetum eða fræjum.

Næringarupplýsingar

Secret Link