300 g hafrar
140 g blandaðir þurrkaðir ávextir, t.d. trönuber og rúsínur
140 g möndlur
2 msk hampfræ
2 msk hörfræ
2 msk chia-fræ
2 meðalstór græn epli (ca. 400 g), kjarnhreinsuð og skorin í fernt
8 steinlausar döðlur (ca. 60 g)
60 ml hlynsíróp
2½ tsk kanill
½ tsk engifer
¼ tsk múskat
Hitið ofninn í 175°C og setjið bökunarpappír í ofnplötu
Setjið hafra, þurrkaða ávexti, möndlur, hampfræ, hörfræ og chia-fræ í stóra skál og blandið saman. Setjið til hliðar.
Setjið epli, döðlur, hlynsíróp og kryddin í Vitamix könnuna í þessari röð og lokið vel.
Byrjið á lægsta hraða og hækkið fljótt upp í hæsta hraða. Blandið í 45 sekúndur og notið tampinn til að ýta hráefninu niður að hnífunum.
Hellið eplablöndunni yfir þurrefnin og blandið þar til allt er jafnt hjúpað.
Dreifið granólunni jafnt á ofnplötuna.
Bakið í 25–35 mínútur, eða þar til granólað er fallega gyllt.
Leyfið að kólna alveg og geymið síðan í loftþéttu íláti.