Dulce de Leche Crème Brûlée

Hráefni

240 ml rjómi

360 ml nýmjólk

370 g (1 dós) dulce de leche

6 eggjarauður

1 tsk vanilludropar

¼ tsk möndluessens

¼ tsk gróft salt

30 g strásykur

Aðferð

Hitið ofninn í 150°C.

Setjið öll hráefni nema sykurinn í Vitamix-könnuna, í þeirri röð sem þau eru talin upp, og lokið vel.

Keyrið Hot Soup forritið eða byrjið á lægsta hraða og aukið fljótt upp í hæsta hraða. Blandið í 5 mínútur og 45 sekúndur.

Takið lokið varlega af og mælið hitastigið með hitamæli. Blandan á að vera 76–85°C.

Ef hún er ekki nógu heit, setjið lokið aftur á og blandið á háum hraða í 1 mínútu í viðbót.

Hellið blöndunni í ca. 120 ml eldföst mót (hægt er að nota stærri eða minni form en þá þarf að gera ráð fyrir því í eldunartíma) og fyllið þau nánast upp að brún.

Fjarlægið loftbólur af yfirborðinu með skeið.

Setjið mótin í djúpa ofnskúffu og hellið heitu vatni í hana þannig að vatnið nái upp að hálfri hæð mótanna.

Passið að vatn fari ekki í mótin.

Bakið í 35–40 mínútur, eða þar til aðeins miðjan á kreminu hristist örlítið þegar mótin eru hreyfð.

Látið kólna í vatnsbaðinu í 30 mínútur, síðan á grind í aðrar 30 mínútur.

Þegar búðingurinn hefur náð stofuhita, setjið plastfilmu yfir og kælið í ísskáp í að minnsta kosti 4 klst, eða yfir nótt.

Framreiðsla: 

Stráið um 1 teskeið af sykri jafnt yfir hvert form.

Notið gasbrennara og karamellíserið sykurinn með því að færa logann hægt í hringi, í 15–25 cm fjarlægð, þar til sykurinn hefur fengið fallegan lit. Ef ekki er gasbrennari til staðar er hægt að setja ofninn á grillstillingu með hæsta hitastig og hafa formin á ofngrindinni eins nálægt grillinu og hægt er.

Skreytið með ferskum ávöxtum og berið fram strax.

Magn: 10 skammtar
Stærð könnu: 2 lítra

Næringarupplýsingar

Secret Link