1 þroskaður banani
2 egg
1/2 bolli haframjöl
salt á hnífsoddi
kanill á hnífsoddi
1 tsk chiafræ
klípa af kókosolíu/smjör til að steikja
Aðferð
Allt sett í vitamixer og blandað vel saman. Má nota könnuna eða 600 ml aukakönnu með loki.
Hitaðu smá kókosolíu/smjör við meðal hita á pönnu og helltu litlum skömmtum á pönnuna (passa oftast 3-4 í einu) og steiktu pönnukökurnar á báðum hliðum þangað til þær verða gullinbrúnar.
Frábærar og fljótlegar pönnukökur sem er frábært að vera fram með ferskum eða frosnum berjum og smá sætu eða banana sneiðum.
Þessar pönnukökur eru léttar, hollar og bragðgóðar. Þær eru einstaklega auðveldar að búa til í Vitamix blandaranum þínum.